föstudagur, júní 24, 2005

Að hlaupa til dóma

Til þess að auðvelda mér að hugsa (sem er alltaf að verða erfiðara og erfiðara) hef ég gjarnan gripið til þægilegra hleypi- og fordóma. Þeir stytta mér oft leið að markinu, ég þarf ekki að hugsa hlutina eins djúpt og lengi heldur geti ég einbeitt mér að þeim hluta pælingarinnar sem mér líkar best við og mig langar mest að eyða tíma mínum í.
Ein tæknileg útfærsla slíkra hleypidóma og fordóma er grófflokkunin, aðferð sem byrjar á setningu eins og "fólki má skipta í þrjá hópa, þá sem kunna að telja og þá sem kunna það ekki." Slík flokkun er ekki alltaf svona vitlaus eins og þessi hér á undan, því stundum má hafa gagn af henni. Eg notaði til dæmi slíka þrískiptingu til að útskýra myndlist í síbreytilegu nútímaþjóðfelagi í grein hér um daginn. Hér eru nokkur tilbrigði við stef.

Íslendingum má skipta í tvo flokka;
þá sem senda mynd af barninu/hundinum/feitu frænku eða ömmu í Séð og heyrt;
og þá sem gera það ekki.

Körlum má skipta í þrjá flokka;
þá sem nota ekki rakakrem,
þá sem nota rakakrem
og þá sem vita hvaða nafn rakakremið þeirra ber.

Konum má skipta í tvo flokka;
þær sem hafa sagt; "Karlar eru aumingjar"
og þær sem eiga eftir að segja það.

Þingmönnum má skipta í tvo flokka.
Þá sem eru svo innantómir að þeim tekst ekki að fela það
og hina sem geta falið það.

Fjölmiðlamönnum í ljósvaka má skipta í tvær fylkingar.
Það eru þeir ljósvíkingar sem hugsa bara um sjálfa sig og sínar skoðanir
og síðan hinir ljósvíkingarnir sem hugsa líka um skoðanir annarra á þeim sjálfum.

2 Comments:

Blogger Örn Úlfar said...

Fólki má skipta í 10 flokka. Þá sem kunna og þá sem kunna ekki tvinntölur.

2:51 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Skipta má fólki í 11 flokka, þá sem kunna tvinntölur, þá sem kunna ekki tvinntölur og þá sem stela bröndurum af öðrum bloggum.

6:43 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home